Sjaka
Útlit
Sjaka (um 1787 – 22. september 1828) var hákonungur Súlúmanna á því svæði sem í dag er héraðið KwaZulu Natal í Suður-Afríku frá 1816 til dauðadags. Hann byggði upp stórt miðstýrt konungsveldi með því að leggja nálæga ættbálka undir sig með hervaldi. Þegar hann komst til valda 1816 réði hann yfir um 1500 manna en þegar hann lést taldi ríki hans 250.000 íbúa.
Fyrirrennari: Senzangakhona |
|
Eftirmaður: Dingane |