Jaðrakan
Jaðrakan | ||||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Jaðrakan
| ||||||||||||||||
Ástand stofns | ||||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||||
| ||||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||||
Limosa limosa (Linnaeus, 1758) Brisson, 1760 | ||||||||||||||||
Dreifing jaðrakans blátt=vetrarseta gult=varpsvæði grænt=bæði, staðfugl
| ||||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||||
Scolopax limosa Linnaeus, 1758 |
Jaðrakan (fræðiheiti: Limosa limosa) er stór, háfættur og hálslangur vaðfugl af snípuætt. Fuglinn er álíka stór og spói eða um 40 – 44 sm.
Varpsvæði jaðrakans nær frá Íslandi gegnum Evrópu og svæða í mið-Asíu. Á varptíma er goggur með gul- eða appelsínugulan grunnlit og svart í endann en á veturna er grunnlitur goggs í bleikum tón. Fætur eru dökkgráir, brúnir eða svartir. Kynin líta eins út en á varptíma má þekkja þau á því að bringa, háls og höfuð karlfuglsins er í skærari appelsínugulum lit. Háls og bringa á ungum fuglum er í fölum appelsínugulum lit. Stofnstærð jaðrakana í heiminum er talinn 634.000 til 805.000 fuglar.
Fæða jaðrakansins er aðallega ýmis konar ormar og skordýr og aðrir hryggleysingjar sem halda til í votlendi. Á varptíma eru fræ mikilvægur þáttur í fæðu jaðrakans en utan varptíma er hann í fjörum og á leirum og lifir á ormum, sniglum og ýmiss konar krabbadýrum. Á haustin þegar fuglinn þarf að safna orku fyrir flug á vetrarstöðvar étur hann mikið af berjum.[1]
Íslenskir jaðrakanar eru sérstök deilitegund (Limosa limosa islandica) sem verpir nær eingöngu á Íslandi og hefur vetursetu á svæðinu frá Bretlandi til Íberíuskagans. Fuglarnir koma til varpstöðva á mánaðartímabili frá miðjum apríl til miðs maí. Pörin koma á svipuðum tíma á varpstöðvar þó þau hittist ekki utan varptímans og séu þá ekki á sömu slóðum.[2]
Jaðrakanar eru flestir einkvænisfuglar. Fuglinn verpir þremur til sex eggjum sem eru ólífugræn til dökkbrún. Hann verpir í og við ýmiss konar votlendi eins og flóa, flæðiengi og hallamýrar og er hreiðrið dæld í gróður. Útungun tekur 22 – 24 daga og sitja báðir foreldrar á eggjum. Ungarnir verða fleygir eftir 25 – 30 daga.
Varpsvæði jaðrakana á Íslandi hefur breiðst út frá Suður- og Suðvesturlandi og verpa þeir nú í öllum landshlutum. Fjöldi fugla á Íslandi er talinn um 30.000, þar af sjö til tíu þúsund pör.[3]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Jón Már Halldórsson. „Hvað éta jaðrakanar? “. Vísindavefurinn 5.5.2003. http://visindavefur.is/?id=3386. (Skoðað 12.4.2011).
- ↑ Arrival synchrony in migratory birds (Nature, 2004)
- ↑ „Náttúrufræðistofa Kópavogs: Vaðfuglar“. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. mars 2016. Sótt 12. apríl 2011.
Heimildir
[breyta | breyta frumkóða]- Tómas Gunnarsson og Böðvar Þórisson. 2004. „Fjölgun Jaðrakans í Önundarfirði og Dýrafirði milli 1979 og 2003“. Bliki 25: 61-65.
- Fuglavefurinn (Námsgagnastofnun) Geymt 3 apríl 2012 í Wayback Machine