Fara í innihald

Zacatecas

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 1. febrúar 2024 kl. 12:59 eftir Fyxi (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. febrúar 2024 kl. 12:59 eftir Fyxi (spjall | framlög) (nav)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Kort.

Zacatecas er fylki í mið-Mexíkó. Það er 75.284 km2 að flatarmáli og eru íbúar um 1,6 milljónir (2020). Meðalhæð í fylkinu er 2230 metrar yfir sjávarmáli og landslag einkennist af hásléttum og fjöllum. Málmvinnsla er mikilvæg í Zacatecas og aðallega silfur. Nafn fylkisins kemur úr nahúatl og þýðir þar sem nægt gras finnst og vísar í höfuðborgina, Zacatecas. Þar var ein stærsta orrustan í mexíkóska sjálfstæðisstríðinu.