Fara í innihald

Glimmer

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 22. nóvember 2013 kl. 14:35 eftir 193.4.101.102 (spjall) Útgáfa frá 22. nóvember 2013 kl. 14:35 eftir 193.4.101.102 (spjall)
Glimmersflögur

Glimmer eða bíótít er steind sem er gerð úr vatnsblönduðu kalíum-ál-sílikati.

Lýsing

Hefur þunna plötulaga kristala. Það er dökkbrúnt eða svart á litinn og hefur skelplötugljáa og eru flögurnar stökkar.

  • Efnasamsetning: K(Mg,Fe)3(Al,Fe)Si3O10(OH,F)2
  • Harka: 2½-3
  • Kristalgerð: Mónóklín
  • Eðlisþyngd: 2,7-3,3
  • Kleyfni: góð

Útbreiðsla

Glimmer finnst aðallega í innskotum sem hefur fallið úr kvikuvessum á lokastigi storknunar. Algengustu afbrigðin eru dökkt glimmer (bíótít) og ljóst glimmer (múskóvít) sem eru báðar algengar í myndbreyttu bergi þá aðallega gneisi og gljáflögubergi t.d. graníti.

Notkun

Glimmer er góð einangrun og hefur verið notuð í raftæki, rúður og málningu. Stærstu glimmernámur heims eru á Indlandi.

Heimild