Fara í innihald

Verslunin Edinborg

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Verslunin Edinborg í Hafnarstræti, skreytt vegna konungskomunnar 1907. Þetta hús brann 1915

Verslunin Edinborg var ein af stærri kaupmannsverslununum í Reykjavík á fyrri hluta 20. aldarinnar en þaðan var einnig gert út. Á seinni hluta 20. aldarinnar voru þar fyrst og fremst seldar vefnaðarvörur og leikföng. Verslunin var stofnuð af Ásgeiri Sigurðssyni sem var jafnframt konsúll eða sendiherra Breta. Verslunin var með útibú á Eskifirði og á Ísafirði þar sem verslunin stóð fyrir byggingu hafskipsbryggju sem varð tilefni deilna í bæjarstjórn.

Fljótlega eftir stofnun, eða uppúr aldamótunum 1900, var hægt að fá vínber og epli í janúar í versluninni.[1] Fyrsta árið eftir stofnun RÚV árið 1930 leigði það aðstöðu hjá Edinborgarverslun við Hafnarstræti en fluttist svo um set í Landssímahúsið við Austurvöll.[2]

  1. „Fróðleg sýning um matarhefðir í heila öld“.
  2. „Ríkisútvarpið var formlega stofnað“.