Verkfall
Það þarf að skrifa þessa grein út frá alþjóðlegu sjónarmiði. Vinsamlegast bættu greinina eða ræddu málið á spjallsíðunni. |
Verkfall er skipulögð vinnustöðvun launafólks í fyrirtæki, starfsgrein(um) eða iðnaði til að ná fram til dæmis launahækkun eða bættum vinnuskilyrðum yfirleitt hjá starfsfólki sem fer í verkfall en stundum til að þrýsta á annarra vinnuveitendur, þá kallað "samúðarverkfall". Verkbann er samsvarandi vinnustöðvun að undirlagi atvinnurekenda. Verkföll urðu fyrst almennt notuð í réttindabaráttu launafólks í Iðnbyltingunni þegar þörf skapaðist fyrir mikið af vinnuafli í verksmiðjum.
Verkfall getur verið ótímabundið eða tímabundin aðgerð en þá jafnvel endurtekin, hugsanlega reglulega. Stundum neita starfsmenn að vinna yfirvinnu, sem er strangt til tekið ekki verkfall.
Dæmi um verkföll
[breyta | breyta frumkóða]Langvinn verkföll á Íslandi hafa t.d. átt sér stað í vinnudeilum kennara. Verkfall grunnskólakennara 2004 og 1995 stóðu í meira en mánuð.
Á árinu 2015 fóru læknar, hjúkrunarfræðingar, starfsmenn SFR, lögreglan og Sjúkraliðafélag Íslands í verkfall.
Sjómenn fóru í verkfall á árinu 2001, og í 10 vikur frá miðjum desember 2016 fram í febrúar 2017.
BHM fór í verkfall 1984. Framhaldsskólakennarar fóru í verkfall 1995.