Stefni
Útlit
Stefni (einnig kallað framstefni og stundum nef) er heiti á fremsta hluta skipsskrokks. Einnig er til afturstefni, en það er skuturinn aftanverður (og þá oft í laginu eins og stefni). Stór (flutninga)skip hafa gjarnan perulaga stefni, s.k. perustefni, sem minnkar eldsneytiseyðslu.
Orð tengd stefni
[breyta | breyta frumkóða]- gægja er lot á báti.
- hnísa er á mótum stefnis og kjalar.
- kylfa var í íslensku fornmáli haft um efsta hluta skipsstefnis.
- lot (einkum haft í fleirtölu) er bugurinn neðst á stefni og skut báta framan og aftan kjalar. Annars útskýrt aðeins sem halli á stefni.
- sax er efsti hluti skipsstefnis. Í fleirtölu (söx) er afturámóti átt við fremsta rúm í skipi.