Fara í innihald

Spjall:Kóreupopp

Innihald síðu er ekki stutt á öðrum tungumálum.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Ýmislegt er gott um þessa grein að segja. Hún er fróðleg fyrir þá sem ekki hafa fylgst með þessari grein poppsins. Og hún væri ágæt í tímariti. En hún er alveg kennslubókardæmi um það hvernig ekki er skrifað í alfræðirit. Það þyrfti að stytta hana mikið og umorða frá upphafi til enda.

Mér finnst hún að mestuleiti fín, er búin að hreinsa hana töluvert, vertu velkomin að halda því starfi áfram. Hún er skrifuð sem og margar fleiri greinar um tónlistarstefnur sem komið hafa inn undanfarið að virðist af sennilega einhverjum nemendum sem kennari hefur sett það verkefni að skrifa grein á w í stað þess að skrifa ritgerð, eða svo lítur út. Sum þeirra eru að ná þessu betur en önnur en flestar þessarra greina bera þess merki að um er að ræða fyrstu grein viðkomandi svo mér finnst ekkert óeðlilegt að að þær séu mjög misjafnar. Aftur á móti fagna ég persónulega öllu svona framtaki sem þarna virðist vera á ferðinni þótt það sé nokkur vinna að hreinsa upp flestar þessarra greina og aðlaga að stíl wikipedia. Bragi H (spjall) 23. mars 2013 kl. 09:28 (UTC)[svara]