Fara í innihald

Spjall:Fallöxi

Innihald síðu er ekki stutt á öðrum tungumálum.
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Ath. að fallöxi, rafmagnsstóll og banvæn sprauta teljast alls ekki til vopna, þó að þau séu vissulega ,,drápstæki" eða ,,aftökutæki" eða e.þ.h.! Thvj 22:31, 19 mars 2007 (UTC)

Vopn getur reyndar einfaldlega þýtt "eitthvað sem er notað gegn andstæðingi", þannig séð er fallöxin vopn (svo er auðvitað alltaf hægt að fella hana og láta lenda á einhverjum ;] ) --Baldur Blöndal 23:33, 19 mars 2007 (UTC)

Jú,jú auðvitað má teygja orðið vopn út og suður, en ég get ómögulega fallist á að fallöxi sé vopn í þeim skilningi að böðullinn sé að fella óvin e.þ.h.. Böðullinn hefur einfaldlega ekkert val um á hvern hann beitir fallöxi og getur því ekki beitt henni sem vopni (enginn annar en böðull getur eða á að beita aftökutæki, eða hvað). Sá sem beitir vopni til árása, veiða eða gegn óvini á vígvelli gerir það að eigni vali eða velur a.m.k. skotmarkið sjálfur. Thvj 23:44, 19 mars 2007 (UTC)

Fallbyssur og önnur langdræg vopn eins og til dæmis eldflaugar er flokkuð sem vopn. Stjórnendurar hafa ekkert val um á hvern þeir skjóta, þeir verðu jú að gegna skipanir. --Parabalin 1.mars 2010 kl. 19:00

Þetta er nú flokkað sem Blade weapon á ensku Wikipediu en ég sammála að þetta teljist seint til vopns --バルドゥル 1. mars 2010 kl. 20:42 (UTC)[svara]