San Severo
Útlit
San Severo er bær í sýslunni Foggia í Apúlíu á Suður-Ítalíu. Íbúafjöldi er um 56 þúsund. Bærinn var stofnaður á 11. öld og byggðist upp umhverfis kirkju sem Benediktínar frá klaustrinu á Montecassino reistu. Árið 1627 hrundi nær allur bærinn til grunna í jarðskjálfta og áttahundruð íbúar fórust. Enduruppbygging gekk hægt, meðal annars vegna farsótta, en bærinn var endurreistur í barokkstíl.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist San Severo.