George Grote
Útlit
George Grote (17. nóvember 1794 – 18. júní 1871) var enskur fornfræðingur og sagnfræðingur.
Grote gekk vel í skóla en faðir hans neitaði að kosta upp á hann háskólanám og útvegaði honum vinnu í banka í staðinn. Grote varði öllum frístundum sínum í lestur klassískra bókmennta, sagnfræðirita, frumspeki og stjórnmálafræði og lærði þýsku, frönsku og ítölsku.
Árið 1817 kynntist Grote verkum Davids Ricardo, sem höfðu þó nokkur áhrif á hann, og í gegnum Ricardo kynntist hann verkum James Mill og Jeremys Bentham.
Helstu ritverk
[breyta | breyta frumkóða]- Statement of the Question of Parliamentary Reform (1821)
- Morning Chronicle (1822)
- Analysis of the Influence of Natural Religion on the Temporal Happiness of Mankind by Philip Beauchamp (1822)
- Essentials of Parliamentary Reform (1831)
- Plato and the Other Companions of Sokrates í þremur bindum (1865)