Eurostar
Útlit
Eurostar er háhraðalest í Vestur-Evrópu sem tengir Lundúnir og Kent við París og Lille í Frakklandi og Brussel í Belgíu. Auk er takmarkuð þjónusta við Disneyland Resort Paris í Frakklandi. Lestir fara undir Ermarsundið um Ermarsundsgöngin.
Lestirnar eru með 18 vögnum sem geta náð 300 km/klst. hraða. Eurostar var tekin í notkun 1994.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Eurostar.