Fara í innihald

Sumarólympíuleikarnir 1980

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 12. ágúst 2010 kl. 13:46 eftir 193.4.101.102 (spjall) Útgáfa frá 12. ágúst 2010 kl. 13:46 eftir 193.4.101.102 (spjall)
Maraþon fyrir framan Dómkirkju heilags Basilíusar í Moskvu 1980.

Sumarólympíuleikarnir 1980 voru haldnir í Moskvu í Sovétríkjunum dagana 19. júlí til 3. ágúst 1980.

Bandaríkin ákváðu að hunsa Ólympíuleikana vegna innrásar Sovétmanna í Afganistan sem hófst árið áður. Mörg önnur stór ríki eins og Japan, Vestur-Þýskaland, Kína, Filippseyjar og Kanada ákváðu í kjölfarið að hunsa leikana í mótmælaskyni. Sum ríki sem hunsuðu leikana eins og Bretland leyfðu íþróttamönnum sínum að taka þátt á eigin vegum. Íþróttamenn sextán landa gengu inn á leikvanginn undir ólympíufána í stað þjóðfána.

Keppnisgreinar

Keppt var í 203 greinum. Fjöldi keppna í einstökum íþróttaflokkum er gefinn upp í sviga.

Þátttaka Íslendinga á leikunum

Skiptar skoðanir voru á því hvort Íslendingar ættu að taka þátt á Ólympíuleikunum í Moskvu eða fara að fordæmi Bandaríkjamanna og fleiri þjóða með því að sitja heima. Morgunblaðið og Vísir gagnrýndu þátttökuna harðlega, en íslenska Ólympíunefndin hélt sínu striki. Skoðanakannanir leiddu í ljós að mikill meirihluti landsmanna var sammála þeirri ákvörðun.

Níu íslenskir íþróttamenn kepptu í Moskvu, allt karlmenn. Þetta voru fjórir frjálsíþróttamenn, þrír kraftlyftingamenn og tveir keppendur í júdó. Í fyrsta sinn frá leikunum í Melbourne 1956 sátu íslenskir sundmenn heima.

Árangur frjálsíþróttamannanna var mjög góður. Jón Diðriksson og Oddur Sigurðsson náðu til að mynda báðir 19. sæti, Oddur í 800 metra hlaupi og Jón í 1.500 metrum. Hreinn Halldórsson og Óskar Jakobsson komust báðir í úrslit kúluvarpskeppninnar og höfnuðu í 10. og 11. sæti.

Bjarni Friðriksson náði góðum árangri í júdókeppninni. Hann tapaði naumlega í fjórðungsúrslitum á dómaraúrskurði og endaði að lokum í 7. sæti.

Íslenskir kraftlyftingamenn stóðu framarlega á þessum árum og þóttu líklegir til afreka. Allir lyftingamennirnir þrír veiktust hins vegar í maga meðan á ferðinni stóð og unnu engin stórafrek.

Íslenska handknattleikslandsliðinu bauðst að keppa á leikunum, sem ein af varaþjóðum mótsins. Tilboðið var afþakkað í virðingarskyni við þær þjóðir sem kusu að sniðganga leikana og vegna mikils kostnaðar.

Verðlaunaskipting eftir löndum

 Nr.  Land  Gull Silfur Brons Alls
1 Sovétríkin 80 69 46 195
2 Austur-Þýskaland 47 37 42 126
3 Búlgaría 8 16 17 41
4 Kúba 8 7 5 20
5 Fáni Ítalíu Ítalía 8 3 4 15
6 Fáni Ungverjalands Ungverjaland 7 10 15 32
7 Rúmenía 6 6 13 25
8  Frakkland 6 5 3 14
9  Bretland 5 7 9 21
10 Pólland 3 14 15 32
11  Svíþjóð 3 3 6 12
12  Finnland 3 1 4 8
13 Tékkóslóvakía 2 3 9 14
14 Júgóslavía 2 3 4 9
15 Fáni Ástralíu Ástralía 2 2 5 9
16  Danmörk 2 1 2 5
17  Brasilía 2 0 2 4
Eþíópía 2 0 2 4
19  Sviss 2 0 0 2
20 Spánn 1 3 2 6
21  Austurríki 1 2 1 4
22 Grikkland 1 0 2 3
23  Belgía 1 0 0 1
 Indland 1 0 0 1
Zimbabwe 1 0 0 1
26 Norður-Kórea 0 3 2 5
27 Mongólía 0 2 2 4
28 Tansanía 0 2 0 2
29 Mexíkó 0 1 3 4
30 Holland 0 1 2 3
31 Írland 0 1 1 2
32 Úganda 0 1 0 1
Venesúela 0 1 0 1
34 Jamaíka 0 0 3 3
35 Guyana 0 0 1 1
Líbanon 0 0 1 1
Alls 204 204 223 631