Sumarólympíuleikarnir 1908
Sumarólympíuleikarnir 1908 voru haldnir í London 27. apríl til 31. október 1908. Upphaflega stóð til að halda leikana í Róm en eldgos í Vesúvíusi sem olli miklu tjóni í Napólí varð til þess að staðnum var breytt. Sérstakur leikvangur, White City Stadium sem tók 68.000 manns í sæti, var reistur fyrir leikana.
Skráning þátttakenda var einungis leyfð í gegnum ólympíunefndir þátttökulandanna eins og verið hafði á leikunum 1906. 22 ólympíunefndir tóku þátt og liðin gengu flest inn á leikvanginn með þjóðfána. Finnar hefðu átt að ganga undir fána Rússlands þar sem Finnland var þá hluti af Rússneska keisaradæminu en þeir neituðu heldur að taka þátt í opnunarathöfninni. Hið sama gerðu Svíar þar sem gleymst hafði að setja sænska fánann upp við leikvanginn. Einn Íslendingur keppti á leikunum með liði Danmerkur, Jóhannes Jósefsson sem keppti í grísk-rómverskri glímu. Jóhannes komst í undanúrslit en þar mætti hann svíanum Anders Anderssen, en Anderssen hafði betur og endaði Jóhannes því í 4. sæti.
Keppt var í 22 greinum: bogfimi, dýfingum, fimleikum, frjálsum íþróttum, glímu, hjólreiðum, hnefaleikum, hokkíi, jeu de paume, kappróðri, knattspyrnu, lacrosse, listhlaupi, póló, rackets, reiptogi, ruðningi, siglingum, skotfimi, skylmingum, sundi, sundknattleik, tennis og kappsiglingu á vélbátum.