Rifbein
Útlit
Rifbein (eða rif) er eitt af beinunum sem umlykja brjósthol manna og sumra dýra. Venjulegur brjóstkassi manns samanstendur af 24 rifbeinum, 12 á hvorri hlið.
Beinserkur er skapnaður sem lýsir sér þannig að rifjahylkið nær niður á mjaðmarbein (þ.e. ekkert bil á milli mjaðmanna og rifjanna).´Áður fyrr þótti beinserkur merki um hreysti og styrkleika, þó menn gætu tæpast beygt sig. Var þá til dæmis sagt: Sveinn var karlmenni mikið, kallað hann hefði beinserk. Beinserkur hefur þó síðan verið notað í yfirfærðri merkingu um stirðleika og fornaldarbrag, sbr: Þetta var úreltur vísindastíll, sem lá eins og beinserkur utan um hugsunarhátt gömlu háskólamannanna.
Eitt og annað
- Samkvæmt biblíunni var Eva sköpuð úr rifbeini Adams. Segir svo í Fyrstu Mósebók: Þá lét Drottinn Guð fastan svefn falla á manninn. Og er hann var sofnaður, tók hann eitt af rifjum hans og fyllti aftur með holdi. Og Drottinn Guð myndaði konu af rifinu, er hann hafði tekið úr manninum, og leiddi hana til mannsins.