Fara í innihald

Demetra

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 20. apríl 2007 kl. 20:54 eftir Robbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. apríl 2007 kl. 20:54 eftir Robbot (spjall | framlög) (robot Bæti við: he:דמטר Breyti: lb:Demeter)
Demetra

Demetra eða Demeter (grísku: Δημήτηρ) er móðurgyðja og gyðja akuryrkju í grískri goðafræði.

Hún er dýrkuð í elevsísku launhelgunum. Persefóna, dóttir Demetru var numin af brott af Hadesi. Harmþrungin og reið stöðvaði Demetra þá þroska alls lífs á jörðinni en Seifur miðlaði málum milli þeirra og Hadesar. Varð að samkomulagi að Persefóna dveldist hjá Hadesi þriðjung árs en byggi hjá Demetru í átta mánuði á ári. Sögnin endurspeglar árstíðarskipti í akuryrkjusamfélagi. Rómversk hliðstæða Demetru er Ceres.

Snið:Forn-stubbur