Fara í innihald

Sambandsríki

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 10. mars 2021 kl. 22:18 eftir TKSnaevarr (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. mars 2021 kl. 22:18 eftir TKSnaevarr (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Kort sem sýnir sambandsríki í heiminum.

Sambandsríki er samband tveggja eða fleiri fylkja (oft kölluð ríki) með talsverða sjálfstjórn sem lúta miðstýrðri ríkisstjórn. Þetta fyrirkomulag er tryggt í stjórnarskránni og ekkert fylki/ríki getur sagt sig úr sambandsríkinu með einhliða ákvörðun. Andstæðan við sambandsríki er einingarríki eins og t.d. Ísland.

Sambandsríki eru algengust í stórum og víðáttumiklum löndum eða löndum þar sem eru hlutfallslega stórir eða margir minnihlutahópar. Dæmi um sambandsríki eru Bandaríkin, Rússneska sambandsríkið og Þýskaland.

  Þessi stjórnmálagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.