Fara í innihald

Pauleta

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 24. júní 2006 kl. 08:29 eftir YurikBot (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júní 2006 kl. 08:29 eftir YurikBot (spjall | framlög) (robot Bæti við: fi, sv, tr, zh)

Pauleta, fullu nafni Pedro Miguel Carreiro Resendes (fæddur 28. apríl, 1973 í Ponta Delgada, Azoreyjum) er portúgalskur knattspyrnumaður sem leikur með franska liðinu Paris Saint-Germain.

Pauleta er eini portúgalski landsliðsmaðurinn sem hefur aldrei spilað í efstu deild Portúgals. Þann 12. október 2005 bætti hann markamet knattspyrnumannsins Eusébio þegar hann skoraði 42. markið sitt fyrir portúgalska landsliðið.