H&M
Sænskt fjölþjóðlegt fatasölufyrirtæki
H & M Hennes & Mauritz betur þekkt sem H&M er sænskt fyrirtæki sem rekur tískuvöruverslanir sem hóf starfsemi árið 1947. Fyrirtækið býður uppá föt fyrir konur, karla, unglinga og börn. Það hefur næstum 2.200 verslanir í 38 löndum og þar starfa um 87.000 manns Snið:Vantar heimild. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Stokkhólmi. Verksmiðjur þeirra eru um 800 talsins og eru í Evrópu og Asíu.
Ísland
breytaÁrið 2017 opnaði fyrsta H&M verslun á Íslandi í Smáralind. Tæpum mánuði síðar opnaði önnur verslun í Kringlunni og 2018 opnaði verslun í Hafnartorgi í miðbæ Reykjavíkur. Fjórða verslunin opnaði í Glerártorgi á Akureyri árið 2020.
Tenglar
breyta- H&M
- http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2017/09/27/h_m_opnar_i_kringlunni_a_morgun/
Þessi fyrirtækjagrein sem tengist Svíþjóð er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.