Gyðingar
Gyðingar eru þjóð, menningarhópur og trúarlegur söfnuður sem á rætur að rekja til Hebrea í Austurlöndum nær til forna. Menningarheimur Gyðinga, þjóðarvitund þeirra og trú eru tengd nánum böndum.[1][2] Zíonismi varð til seint á 19. öld og gengur út á sameiningu gyðinga í einu ríki. Algengast er nú á dögum að fólk fæðist inn í gyðingdóm, enda eru ströng skilyrði fyrir því að taka trúna. Gyðingar eru minnihlutahópur í öllum löndum fyrir utan Ísrael.[3] Þeir hafa verið ofsóttir í aldanna rás og náðu þær ofsóknir hámarki með helförinnni. Fyrir stofnun Ísraelsríkis árið 1948 höfðu Gyðingar í tvígang átt eigið ríki. Sökum flókinna tengsla þjóðarvitundar, trúar og ætternis er vandkvæðum bundið að kasta tölu á Gyðinga sem þjóð en áætlaður fjöldi Gyðinga í dag eru um 15 milljónir, þar af búa flestir í Bandaríkjunum og Ísrael.[3]
Gyðingar og Gyðingdómur
breytaFram til átjándu aldar féllu hugtökin Gyðingur og Gyðingdómur nánast alveg saman. Með tilkomu gyðinglegrar upplýsingar, Haskala, varð róttæk breyting á sjálfsmynd margra Gyðinga og litu þeir eftirleiðis á sig sem hluta þjóðarinnar án þess að vera iðkendur gyðinglegrar trúar eða fylgismenn hefða hennar.
Tengt efni
breytaHeimildir
breyta- ↑ Eli Lederhendler (2001). Studies in Contemporary Jewry: Volume XVII: Who Owns Judaism? Public Religion and Private Faith in America and Israel. Oxford University Press. bls. 101–. ISBN 978-0-19-534896-5.
- ↑ Tet-Lim N. Yee (2005). Jews, Gentiles and Ethnic Reconciliation: Paul's Jewish identity and Ephesians. Cambridge University Press. bls. 102–. ISBN 978-1-139-44411-8.
- ↑ 3,0 3,1 Dashefsky, Arnold; Della-Pergola, Sergio; Sheskin, Ira, ritstjórar (2021). World Jewish Population (PDF) (Report). Berman Jewish DataBank. Sótt 4. september 2023.