Meistaradeildin áfram á Stöð 2 Sport í samstarfi við Viaplay Atli Ísleifsson skrifar 21. janúar 2021 08:13 Bayern München fagna Meistaradeildartitlinum í ágúst síðastliðinn eftir sigur á PSG í Lissabon. Getty Stöð 2 Sport hefur tryggt sér sýningarrétt að stærstu félagsliðakeppnum Evrópu í knattspyrnu og mun sýna frá Meistaradeild Evrópu, Evrópudeildinni og nýrri keppni, UEFA Europe Conference League, frá 2021 til 2024. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn, en þar segir að sýningarréttinum sé deilt með NENT Group, sem starfræki Viaplay á Íslandi. Slíkt fyrirkomulag sé þekkt víða um heim, meðal annars í Noregi þar sem Nent og TV2 deila sýningarrétti Meistaradeildar Evrópu. „Auk þess að sýna leiki Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildarinnar er Stöð 2 Sport einnig með sýningarréttinn á Íslandi að enska bikarnum, enska deildabikarnum, ensku 1. deildinni, spænska og ítalska boltanum, NBA, NFL, spænska körfuboltanum og öllum sterkustu golfmótum heims. Þar að auki er Stöð 2 Sport með metnaðarfulla dagskrárgerð í íslenskum íþróttum – knattspyrnu, handknattleik og körfubolta. Það er Stöð 2 Sport mikið ánægjuefni að geta boðið áfram upp á úrvalsefni fyrir sína áskrifendur. Meira en 100 leikir Meistaradeildarinnar, Evrópudeildarinnar og Conference League verða sýndir árlega á Stöð 2 Sport og þeim gerð ítarleg skil í öruggum höndum færustu lýsenda og sérfræðinga landsins í vinsælustu íþrótt heims,“ segir í tilkynningunni. Í takt við þróun víða um heim Haft er eftir Eiríki Stefáni Ásgeirssyni, forstöðumanni Stöðvar 2 Sport, að það sé ánægjulegt að ná að tryggja áframhaldandi útsendingar og innlenda þáttagerð tengdri Meistaradeildinni, Evrópudeildinni og svo spennandi nýjungum, Conference League, þar sem íslensk félagslið geti mögulega verið þátttakendur. „Samstarfið við Viaplay er í takt við þróun víða um heim þar sem algengt er að sýningarréttum sem þessum sé deilt. Stöð 2 Sport hefur útvíkkað ýmiskonar samstarf undanfarið og selur t.a.m. í dag aðgang að NFL Game Pass á frábæru verði og fljótlega mun samskonar samstarfi við NBA vegna NBA League Pass verða ýtt úr vör. Þessu fylgir svo fjölbreytt innlend dagskrárgerð í ýmsu formi tengdum útsendingum,“ segir Eiríkur Stefán. Vísir er í eigu Sýnar. Fjölmiðlar Meistaradeild Evrópu Evrópudeild UEFA Mest lesið Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Viðskipti innlent Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Viðskipti innlent Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Viðskipti innlent „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Borgar 760 þúsund fyrir flísalögn sem átti að kosta þrjár milljónir Neytendur Lætur mál gegn OpenAI niður falla Viðskipti erlent Að sækja um starf eftir uppsögn Atvinnulíf Frederiksen víkur fyrir Bird Viðskipti innlent Fleiri fréttir Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Þrálát verðbólga mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið Ráðinn nýr framkvæmdastjóri hjá Landsneti Herða eftirlit með kínverskum verslunarrisa í leiftursókn Félag í eigu Quang Lé gjaldþrota Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni „Viðskiptakonan“ sem komst á Bessastaði í annarri tilraun Sjá meira
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sýn, en þar segir að sýningarréttinum sé deilt með NENT Group, sem starfræki Viaplay á Íslandi. Slíkt fyrirkomulag sé þekkt víða um heim, meðal annars í Noregi þar sem Nent og TV2 deila sýningarrétti Meistaradeildar Evrópu. „Auk þess að sýna leiki Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildarinnar er Stöð 2 Sport einnig með sýningarréttinn á Íslandi að enska bikarnum, enska deildabikarnum, ensku 1. deildinni, spænska og ítalska boltanum, NBA, NFL, spænska körfuboltanum og öllum sterkustu golfmótum heims. Þar að auki er Stöð 2 Sport með metnaðarfulla dagskrárgerð í íslenskum íþróttum – knattspyrnu, handknattleik og körfubolta. Það er Stöð 2 Sport mikið ánægjuefni að geta boðið áfram upp á úrvalsefni fyrir sína áskrifendur. Meira en 100 leikir Meistaradeildarinnar, Evrópudeildarinnar og Conference League verða sýndir árlega á Stöð 2 Sport og þeim gerð ítarleg skil í öruggum höndum færustu lýsenda og sérfræðinga landsins í vinsælustu íþrótt heims,“ segir í tilkynningunni. Í takt við þróun víða um heim Haft er eftir Eiríki Stefáni Ásgeirssyni, forstöðumanni Stöðvar 2 Sport, að það sé ánægjulegt að ná að tryggja áframhaldandi útsendingar og innlenda þáttagerð tengdri Meistaradeildinni, Evrópudeildinni og svo spennandi nýjungum, Conference League, þar sem íslensk félagslið geti mögulega verið þátttakendur. „Samstarfið við Viaplay er í takt við þróun víða um heim þar sem algengt er að sýningarréttum sem þessum sé deilt. Stöð 2 Sport hefur útvíkkað ýmiskonar samstarf undanfarið og selur t.a.m. í dag aðgang að NFL Game Pass á frábæru verði og fljótlega mun samskonar samstarfi við NBA vegna NBA League Pass verða ýtt úr vör. Þessu fylgir svo fjölbreytt innlend dagskrárgerð í ýmsu formi tengdum útsendingum,“ segir Eiríkur Stefán. Vísir er í eigu Sýnar.
Fjölmiðlar Meistaradeild Evrópu Evrópudeild UEFA Mest lesið Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Viðskipti innlent Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Viðskipti innlent Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Viðskipti innlent „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Borgar 760 þúsund fyrir flísalögn sem átti að kosta þrjár milljónir Neytendur Lætur mál gegn OpenAI niður falla Viðskipti erlent Að sækja um starf eftir uppsögn Atvinnulíf Frederiksen víkur fyrir Bird Viðskipti innlent Fleiri fréttir Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Bein útsending: Ásgeir og Arnór sitja fyrir svörum Þrálát verðbólga mun skapa áskoranir fyrir fjármálakerfið Ráðinn nýr framkvæmdastjóri hjá Landsneti Herða eftirlit með kínverskum verslunarrisa í leiftursókn Félag í eigu Quang Lé gjaldþrota Öfugþróun að minni verðmæti komi af hverjum ferðamanni „Viðskiptakonan“ sem komst á Bessastaði í annarri tilraun Sjá meira