iPad: Úrræðaleit vegna vandamála með vélbúnað

Úrræðaleit vegna vandamála með hnappa eða rofa

Úrræðaleit vegna vandamála með heimahnappinn eða Touch ID

Úrræðaleit vegna vandamála vegna SIM-korts

Úrræðaleit vegna vandamála með hnappa eða rofa

Greining vandamála

Lesið þessa grein ef einhver af eftirfarandi vandamálum eru til staðar:

Nota heimahnappinn, hliðarhnappinn og aðra hnappa á iPad

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein skal halda áfram í næsta hluta.

Prófa skjót skref fyrir úrræðaleit

  1. Skoðið vandlega svæðið kringum alla hnappa og rofa. Athugið eftirfarandi ef hnappurinn eða rofinn er annaðhvort fastur eða ekki er hægt að ýta á eða hreyfa hann:

    1. Hvort eitthvert efni veldur því að hnappurinn eða rofinn er fastur í einni stöðu.

    2. Hvort óhreinindi eru í kringum hnappinn eða rofann sem valda því að ekki er hægt að ýta á eða hreyfa hnappinn eða rofann.

    3. Hvort hnappurinn eða rofinn er brotinn eða bilaður.

  2. Endurræsið iPad. Ef iPad endurræsist ekki skal prófa að þvinga endurræsingu á tækinu.

  3. Í hlutanum Snúa skjánum á iPad eru nánari upplýsingar um virkni hliðarrofans á eldri iPad-tækjum.

  4. Frekari upplýsingar eru í skrefum og hjálparúrræðum í Fljótleg úrræðaleit.

Keyrið handvirk próf og greiningarpróf

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein eða leita að hugsanlegum orsökum skal keyra þessi greiningar- og handvirku próf til að einangra orsök vandamálsins:

  1. Keyrið Greiningarpakka skoðunarbúnaðar fyrir farsímatilföng (MRI).

  2. Sannprófið notkun hnappa handvirkt með því að ýta á/hreyfa alla hnappa og rofa og sannprófa að iPad þekki aðgerðir þessara hnappa og rofa.

Skiptið um hlutinn

Látið gera við iPad-tækið ef vandamálið leysist ekki eða ekki tekst að einangra orsökina með því að fylgja fyrri skrefum. Þjónustuvalkosti er að finna á support.apple.com/repair.

Athugið: Í þessum hluta þarf að nota varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um hlut. Finna má aðra þjónustuvalkosti á support.apple.com/repair.

Úrræðaleit vegna vandamála með heimahnappinn eða Touch ID

Greining vandamála

Athugið: Þetta verklag er fyrir iPad-gerðir með heimahnappa eða Touch ID. Skoðið tæknilýsingar til að staðfesta eiginleika iPad. Hvað varðar önnur vandamál með hnappa eða rofa skal opna Úrræðaleit vegna vandamála með hnappa eða rofa.

Lesið þessa grein ef vart verður við einhver af eftirfarandi vandamálum:

  • Heimahnappurinn svarar ekki

  • Efsti hnappurinn bregst ekki við Touch ID

  • Ekki er hægt að lesa fingrafar

  • Ekki er hægt að skrá fingur í stillingum Touch ID

  • Ekki er hægt að ganga frá kaupum með Touch ID

Nota heimahnappinn, hliðarhnappinn og aðra hnappa á iPad

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein skal halda áfram í næsta hluta.

Prófa skjót skref fyrir úrræðaleit

  1. Ekki er víst að allir geti notað eiginleika fingrafaraskannans. Sumt fólk skortir samviðnámið sem þarf til að virkja lífkennisskynjara, sem er eðlilegt og ekki vandamál sem tengist viðhaldi. Reynið að virkja virkt tæki með Touch ID til að fá úr því skorið hvort notandinn tilheyri þessum fámenna hópi, ef hægt er.

  2. Hreinsa iPad. Hreinsið óhreinindi af Touch ID-skynjaranum með hreinum, lófríum klút.

  3. Gangið úr skugga um að fingur séu hreinir og þurrir.

    • Athugið: Raki, handáburður, sviti, olíur, skurðir eða sérstaklega þurr húð getur haft áhrif á fingrafarakennsl. Tilteknar athafnir geta einnig haft tímabundin áhrif á fingrafarakennsl, þ.á.m. æfingar, sturta, sund, eldamennsku, aðrar aðstæður eða breytingar sem hafa áhrif á fingrafarið.

  4. Athugið hvort eitthvað sé fyrir, t.d. hringur eða skjávörn í kringum Touch ID-skynjarann.

  5. Frekari upplýsingar eru í skrefum og hjálparúrræðum í Fljótleg úrræðaleit.

Athugið: Ekki er mælt með viðhaldi vegna vandamála með tiltekinn eða tiltekna fingur. Ef vandamál koma upp með tiltekna fingur skal hafa í huga að í sumum tilfellum er ekki víst að Touch ID geti parað þessa fingur í hvert skipti. Ástæðan er yfirleitt læsileiki tiltekins fingrafars. Hægt er að skrá fingurinn síðar eða nota annan fingur fyrir Touch ID. Ef ekki er hægt að skrá neinn fingur í iPad gæti verið vandamál með Touch ID-skynjarann og sinna ætti viðhaldsþjónustu á tækinu.

Keyrið handvirk próf og greiningarpróf

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein eða leita að hugsanlegum orsökum skal keyra þessi greiningar- og handvirku próf til að einangra orsök vandamálsins:

  1. Keyrið Greiningarpakka skoðunarbúnaðar fyrir farsímatilföng (MRI).

  2. Fyrir iPad-gerðir með heimahnapp, gerið eftirfarandi:

    1. Ýtið á heimahnappinn með slökkt á skjánum og staðfestið að það kvikni á honum.

    2. Hvílið fingurinn á heimahnappinum. iPad ætti að opnast þegar fingrafarið er auðkennt.

  3. Fyrir iPad-gerðir með Touch ID á efsta hnappinum, gerið eftirfarandi:

    1. Ýtið á efsta hnappinn með slökkt á skjánum og staðfestið að það kvikni á honum.

    2. Hvílið fingurinn á efsta hnappinum. iPad ætti að opnast þegar fingrafarið er auðkennt.

Skiptið um hlutinn

Látið gera við iPad-tækið ef vandamálið leysist ekki eða ekki tekst að einangra orsökina með því að fylgja fyrri skrefum. Þjónustuvalkosti er að finna á support.apple.com/repair.

Athugið: Í þessum hluta þarf að nota varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um hlut. Finna má aðra þjónustuvalkosti á support.apple.com/repair.

Úrræðaleit vegna vandamála vegna SIM-korts

Greining vandamála

Athugið: Þetta verklag er fyrir gerðir iPad-tækja með SIM-kortabakka. Sumar gerðir iPad-tækja eru ekki með raunverulegt SIM-kort og SIM-kortabakka. Þessar gerðir eru með eSIM. Skoðið tæknilýsingar til að staðfesta eiginleika iPad.

Lesið þessar greinar ef tekið er eftir einhverjum af eftirfarandi vandamálum:

  • „Ógilt SIM-kort sett í“ birtist

  • „Ekkert SIM-kort sett í“ birtist

  • „Annað SIM-kort fannst“ birtist

Upplýsingar um stærð SIM-korts í iPhone eða iPad

Fjarlægja eða skipta um SIM-kort í iPad

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein skal halda áfram í næsta hluta.

Prófa skjót skref fyrir úrræðaleit

  1. Gangið úr skugga um að iPad sé með virka áskrift hjá netþjónustu.

  2. Tryggið að hægt sé að nota SIM-kortið í iPad. SIM-kort frá netþjónustu sem Apple viðurkennir ekki getur orsakað viðvörunarboð vegna SIM-korts. Ef sett er í annað SIM-kort en notað var fyrir núverandi virkjun iPad getur það orsakað viðvörunarboð vegna SIM-korts.

  3. Gætið þess að réttur SIM-kortabakki hafi verið settur í iPad.

    • Athugið: SIM-kortabakkar eru örlítið mismunandi að stærð og lögun.

  4. Frekari upplýsingar eru í skrefum og hjálparúrræðum í Fljótleg úrræðaleit.

Keyrið handvirk próf og greiningarpróf

Ef vandamálið var ekki leyst með því að fylgja hjálpargrein eða leita að hugsanlegum orsökum skal keyra þessi greiningar- og handvirku próf til að einangra orsök vandamálsins:

  1. Keyrið Greiningarpakka skoðunarbúnaðar fyrir farsímatilföng (MRI).

  2. Notið verkfæri til að opna SIM-kortabakkann. Gangið úr skugga um að kortabakkinn opnist. Ef erfitt er að opna kortabakkann skal skipta honum út.

  3. Leitið eftir skemmdum á SIM-kortabakkanum. Ef hann er skemmdur skal skipta honum út.

  4. Gangið úr skugga um að SIM-kortabakkinn passi við gerð iPad. Ef hann er ekki réttur skal setja í nýjan.

  5. Fjarlægið SIM-kortið með sérstöku verkfæri til að opna SIM-kortabakkann. Gangið úr skugga um að SIM-kortið sitji rétt í bakkanum við ísetningu. Skiptið um SIM-kortabakka ef reynist erfitt að stinga honum í.

Skiptið um hlutinn

Skiptið um SIM-kortabakka ef vandamálið leysist ekki eða orsökin var ekki einangruð með því að fylgja fyrri skrefum. Þjónustuvalkosti er að finna á support.apple.com/repair.

Athugið: Í þessum hluta þarf að nota varahluti og verkfæri. Ekki er víst að vandamál tækisins leysist þótt skipt sé um hlut. Finna má aðra þjónustuvalkosti á support.apple.com/repair.

Birt: