Wikipedia:Grein mánaðarins/06, 2021
Elizabeth Cady Stanton (12. nóvember 1815 – 26. október 1902) var bandarísk kvenréttindakona og einn af upphafsmönnum kvenfrelsisbaráttunnar á Vesturlöndum. Ólíkt mörgum öðrum í kvenréttindabaráttu 19. aldarinnar barðist Stanton fyrir meiru en bara kosningarétt kvenna. Stanton hafði einnig áhuga að bæta forræðisrétt kvenna, eignarétt þeirra, vinnurétt og stjórn kvenna á barneignum.
Stanton fæddist í Johnstown, New York þann 12. nóvember 1815. Foreldrar hennar voru Margaret Livingston og Daniel Cady, þingmaður og hæstaréttardómari. Ólíkt mörgum konum á hennar tíma, fékk Stanton klassíska menntun í Johnstown Academy, þar sem hún lærði latínu, grísku og stærðfræði til sextán ára aldurs. Árið 1830 hóf Stanton nám í Troy Female Seminary, kvennaskóla stofnuðum af Emmu Willard.
Árið 1851 hitti Stanton Susan B. Anthony. Þær tvær urðu einn helsti drifkraftur kvenréttindabaráttunnar í Bandaríkjunum. Anthony var einhleyp og hafði tækifæri til að ferðast um Bandaríkin að tala um kvenréttindi, eitthvað sem Stanton var ekki í aðstöðu til að gera á þeim tíma. Stanton var betri rithöfundur og skrifaði margar af ræðum Anthony, en Anthony hélt utan um skipalag þessarar nýju hreyfingar. Smám saman fengu fleiri konur leiðtogahlutverk í hreyfingunni, meðal annars Lucy Stone og Matilda Joslyn Gage.