Vicente Aleixandre
Útlit
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/2/2f/Vicentealeixandre.jpg/220px-Vicentealeixandre.jpg)
Vicente Pío Marcelino Cirilo Aleixandre y Merlo (26. apríl 1898 – 14. desember 1984) var spænskt ljóðskáld sem hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum árið 1977.
Ævi og störf[breyta | breyta frumkóða]
Vicente Aleixandre fæddist í Sevilla árið 1898 og tilheyrði gríðarlega öflugri kynslóð ungra skálda og rithöfunda sem fram komu á Spáni um miðjan þriðja áratuginn. Árið 1927 komu margir þessara listamanna saman til fundar í Sevilla og var upp frá því farið að tala um ´27 kynslóðina (spænska: Generación del 27) í spænskum bókmenntum. Aleixandre tilheyrði þessum hópi, ásamt t.d. Federico García Lorca og Jorge Guillén.
Ljóð Aleixandre einkenndust af súrrealisma. Berglind Gunnarsdóttir hefur þýtt ljóð eftir Vicente Aleixandre á íslensku.