Oyster-kort
Útlit
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/30/Oystercard.jpg/250px-Oystercard.jpg)
Oyster-kort (úr ensku oyster, „ostra“) er snertilaust kort sem er aðgöngumiði fyrir almenningssamgöngur í London. Kerfinu er stjórnað af Transport for London (TfL) og kortið er í gildi í neðanjarðarlestakerfi Lundúnaborgar, strætisvögnum, Docklands Light Railway, London Overground, sporvögnum og National Rail-lestum á stórborgarsvæði Lundúna.
Oyster-kortið er blátt kort á stærð við kreditkort. Það komið út fyrst árið 2003. Eftir að TfL tók að bjóða upp á greiðslur með snertilausum kredit- og debitkortum, og NFC-tækjum árið 2014 hafa þau smám saman tekið við af Oyster-kortum sem helsti greiðslumáti. Ein af hverjum tíu snjallkortagreiðslum í Bretlandi fóru í gegnum TfL árið 2016.