Kharkív
Útlit
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/3/38/Blagoveschensky_Cathedral_-_01.jpg/220px-Blagoveschensky_Cathedral_-_01.jpg)
Kharkív (úkraínska: Ха́рків [ˈxɑrkiu̯] (ⓘ), einnig þekkt sem Kharkov (rússneska: Харькoв [ˈxarʲkəf]) er borg í norðausturhluta Úkraínu. Hún er önnur stærsta borg landsins og höfuðstaður Kharkívfylkis. Íbúafjöldi borgarinnar var um 1,4 milljón árið 2021. Um tveir af þremur íbúum eru rússneskumælandi.
Í mars 2022 voru gerðar harðar árásir á borgina af hendi Rússa þegar þeir réðust inn í Úkraínu. Um helmingur íbúa flúði borgina og yfir 500 létust þá. Árásir héldu áfram út árið.
Tengt efni
[breyta | breyta frumkóða]