Hveljökull
Útlit
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/b/bd/Satellite_image_of_Iceland_in_September.jpeg/220px-Satellite_image_of_Iceland_in_September.jpeg)
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Hveljökull.
Hveljökull er jökull sem myndast hefur á fjalli með sléttum toppi eða lítilli hásléttu. Þannig jöklar eru nokkuð algengir á Íslandi, til dæmis má taka Eiríksjökul og Þórisjökul.
Síðan eru líka til stærri útgáfur, eiginlegir hveljöklar. Þeir verða til þegar margir staðbundnir jöklar vaxa saman með tímanum í víðáttumiklu fjallendi, einkum ef jöklunarmörk lækka mikið á allöngum kuldaskeiðum. Hveljöklar af þessu tagi eru 200-900 m þykkir hérlendis og 160-8200 km2 að flatarmáli. Sá stærsti á Íslandi er Vatnajökull.
Frá ísaskilum efst á hverjum hveljökli skríður ísinn niður á við og fram í jaðrana.[1]
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ Ari Trausti Guðmundsson, Ragnar Th. Sigurðsson: Íslenskur Jarðfræðilýkill. Reykjavík 2004