Fara í innihald

Hjólataxi

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Hjólataxi er fótknúið þríhjól til að flytja fólk gegn greiðslu. Slík farartæki eru algeng í Asíu og Afríku og kallast þar pedicabs. Slík farartæki eru einnig oft í boði að hjóla með ferðamenn um miðbæ evrópskra borga.

Björn Þorsteinsson, sagnfræðingur, fór til Peking árið 1957 og lýsir þessum farartækjum svo:

Athygli okkar beinist mjög að mönnum á heljarmiklum þríhjólum ýmist með farþegaskýli eða varningsgrind að aftan. Menn þessir tróðu marvaða oft hálfstrípaðir með fjallháa hlaða af kössum og skrani fyrir aftan sig, makindalega farþega i aftursætinu eða fjölda smábarna í búri. Þetta eru leigubifreiðar hins Nýja Kína, og nefnast farartækin pedicabs á kínverskri ensku, en reiðmennirnir peðkappar á íslenzku. Fyrir byltinguna eða frelsunina eins og Kínverjar orða það, beittu menn náunganum fyrir vagna í Miðríkinu og þeystu á þeim um stræti borga. Slík manneyki nefndust jin-riki-sha eða rickshaw, sem mun tákna mannknúinn vagn. [1]

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Nýi tíminn, 1957, 30. maí, 7.
  Þessi samgöngugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.