Danska kirkjan
Útlit
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/e/e3/Vor_Frue_Kirke_Copenhagen.jpg/220px-Vor_Frue_Kirke_Copenhagen.jpg)
Danska kirkjan (danska: Den Danske Folkekirke eða Folkekirken) er opinbert trúfélag í Danmörku og evangelísk-lúthersk kirkja.
Um 72,1% Dana eru meðlimir kirkjunnar (1. jan. 2023). 11 biskupsdæmi eru innan Danmerkur, þar á meðal Grænland. Tólfta biskupsdæmið var Fólkakirkjan í Færeyjum sem nú er sjálfstæð. Enginn erkibiskup er í kirkjunni en æðsta embætti hennar er biskup Kaupmannahafnar. Kirkjan ákvað að gefa saman samkynhneigða árið 2012 en klofningur var innan hennar varðandi það.[1]
33.8% giftinga og 83.7% jarðarfara í Danmörku fara fram í Dönsku kirkjunni.
Heimild[breyta | breyta frumkóða]
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/4/4a/Commons-logo.svg/30px-Commons-logo.svg.png)
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Danska kirkjan.
Fyrirmynd greinarinnar var „Church of Denmark“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 9. september 2016.
Tilvísanir[breyta | breyta frumkóða]
- ↑ Klofningur yfirvofandi í dönsku kirkjunniRúv. Skoðað 9. september, 2016.