Benedetto Croce
Vestræn heimspeki Heimspeki 19. aldar, Heimspeki 20. aldar | |
---|---|
Nafn: | Benedetto Croce |
Fæddur: | 25. febrúar 1866 í Pescasseroli á Ítalíu |
Látinn: | 20. nóvember 1952 (86 ára) í Napólí á Ítalíu |
Skóli/hefð: | Meginlandsheimspeki, hughyggja, frjálslyndisstefna |
Helstu ritverk: | Breviario di estetica (Kjarni fagurfræðinnar) |
Helstu viðfangsefni: | fagurfræði, söguspeki, stjórnmál |
Markverðar hugmyndir: | List sem tjáning og uppfræðsla |
Áhrifavaldar: | Giambattista Vico, Jean-Jacques Rousseau, Immanuel Kant, Johann Gottlieb Fichte, Friedrich Wilhelm Joseph von Schelling, G.W.F. Hegel, Karl Marx, Antonio Labriola, Georges Sorel |
Hafði áhrif á: | Giovanni Gentile, Antonio Gramsci, R.G. Collingwood |
Benedetto Croce (25. febrúar 1866 – 20. nóvember 1952) var ítalskur fagurfræðingur, heimspekingur og gagnrýnandi. Hugðarefni rita hans eru af ýmsu tagi, svo sem heimspeki, saga, aðferðafræði söguritunar og ekki síst fagurfræði. Hann fjallaði einnig um stjórnmál og tók þátt í þeim um hríð. Croce aðhylltist frjálslyndisstefnu en var andstæðingur óhamins viðskiptalífs. Hann hafði áhrif á menntamenn úr ýmsum áttum, jafnt marxista sem fasista.
Meðal verka Croce má telja Breviario di estetica (Kjarni fagurfræðinnar), lítið rit um fagurfræði þar sem listin er sett skör hærra en vísindi og frumspeki þar sem listin er það eina sem uppfræðir manninn. Allt sem maðurinn veit má smætta niður í rökræna og skapandi þekkingu. Listin sprettur af því síðarnefnda og að hluta byggir öll hugsun á henni.