Fara í innihald

Jamala

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Jamala
Jamala í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva (2016)
Upplýsingar
FæddSusana Alimivna Jamaladinova (Susana Alim qızı Camaladinova)
27. ágúst 1983 (1983-08-27) (41 árs)
UppruniOsh, kirgíska sovétlýðveldinu, Sovétríkjunum (nú Kirgistan)
Ár virk2001–núverandi
Stefnurraf, þjóðlaga, sálar, blús, popptónlist
ÚtgáfufyrirtækiMoon, Enjoy! Records, Universal

Súsana Alímívna Dzjamaladínova[a] (f. 27. ágúst 1983), betur þekkt undir sviðsnafninu Jamala[b], er úkraínsk söngkona, leikkona og lagahöfundur. Hún tók þátt í og sigraði Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva 2016 fyrir Úkraínu með laginu „1944“. Árin 2017, 2018 og 2019 var hún í dómnefnd Vidbir, undankeppni Eurovision í Úkraínu.

Jamala er Krímtatari og í laginu „1944“ fjallaði hún um nauðungarflutninga Krímtarara frá Krímskaga sem skipaðir voru af stjórn Stalíns árið 1944. Lagið olli nokkrum deilum þar sem Rússar töldu það vera dæmi um pólitískan áróður sem samræmdist ekki reglum Eurovision. Lagið var víða talið fela í sér gagnrýni á nýafstaðna atburði, nánar tiltekið innlimun Rússa á Krímskaga árið 2014.[1]

Útgefið efni

[breyta | breyta frumkóða]

Breiðskífur

[breyta | breyta frumkóða]
  • For Every Heart (2011)
  • All or Nothing (2013)
  • Подих (Podykh) (2015)
  • 1944 (2016)
  • Крила (Kryla) (2018)
  • Ми (My) (2021)
  • For every heart. Live at Arena Concert Plaza (2012)
  • 10 (2019)
  • Свої (Svoi) (2020)
  • Solo (2019)

Stuttskífur

[breyta | breyta frumkóða]
  • Thank You (2014)
  • 1944 (2016)
  • 5:45 (2021)

Neðanmálsgreinar

[breyta | breyta frumkóða]
  1. krímtataríska: Susana Alim qızı Camaladinova, Сусана Алим къызы Джамаладинова; úkraínska: Суса́на Алі́мівна Джамаладі́нова (Súsana Alímívna Dzjamaladínova); rússneska: Суса́на Али́мовна Джамалади́нова (Súsana Alímívna Dzhamaladínova).
  2. krímtataríska: Camala, Джамала; úkraínska: Джама́ла; rússneska: Джама́ла.

Tilvísanir

[breyta | breyta frumkóða]
  1. Róbert Jóhannsson (22. febrúar 2016). „Umdeilt framlag Úkraínu í Eurovision“. RÚV. Sótt 16. maí 2023.
  Þetta æviágrip sem tengist tónlist er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.