Fara í innihald

Notting Hill

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 30. júlí 2024 kl. 12:17 eftir 217.21.224.207 (spjall) Útgáfa frá 30. júlí 2024 kl. 12:17 eftir 217.21.224.207 (spjall)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fyrir kvikmyndina má sjá Notting Hill (kvikmynd).
Notting Hill

Notting Hill er hverfi í Vestur-London í Englandi. Það er nálægt norðvesturhorni Kensington Gardens í borgarhlutanum Kensington og Chelsea. Notting Hill er fjölþjóðlegt hverfi, þekkt fyrir Notting Hill-karnivalið, hátíð sem haldin er þar árlega. Þar er líka Portobello Road-markaðurinn. Kvikmyndin Notting Hill með Juliu Roberts og Hugh Grant gerist í hverfinu.

Í Notting Hill eru mörg viktoríönsk raðhús og þar þykir eftirsóknarvert að búa. Það eru líka margar eðalverslanir og veitingarhús, sérstaklega við Westbourne Grove.