Fara í innihald

Hryðjuverkin 11. september 2001

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 2. febrúar 2024 kl. 09:35 eftir 212.30.232.112 (spjall) Útgáfa frá 2. febrúar 2024 kl. 09:35 eftir 212.30.232.112 (spjall)
World Trade Center turnarnir í ljósum logum þann 11. september 2001 eftir að farþegaþotum hafði verið flogið á þá. Mikinn dökkgráan reykjarmökk leggur frá toppi turnanna.

Hryðjuverkin 11. september 2001 voru umfangsmiklar hryðjuverkaárásir í Bandaríkjunum þriðjudaginn 11. september 2001, sem skipulögð voru og framkvæmd af Osama bin Laden. Þennan dag var fjórum farþegaþotum rænt á flugi yfir austurströnd Bandaríkjanna, tveimur þeirra flogið á World Trade Center tvíburaturnana í New York, einni flogið á Pentagon-bygginguna í Arlington-sýslu í Virginíu og ein hrapaði í Somerset-sýslu í Pennsylvaníu eftir átök um borð milli farþega og flugliða við hryðjuverkamennina.

Báðir turnar World Trade Center hrundu til grunna og miklar skemmdir urðu bæði á nærliggjandi byggingum og á Pentagon. Auk hryðjuverkamannanna 19 létu 2973 lífið í árásunum, sem höfðu mikil áhrif á alþjóðasamfélagið. Eftir þær hófu Bandaríkjamenn stríðið gegn hryðjuverkum, réðust inn í Afganistan og steyptu þar talíbanastjórninni af stóli og tveimur árum seinna í Írak.

Sjá einnig

  Þessi Bandaríkja-tengda grein sem tengist sögu er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.