Fara í innihald

Freska

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 15. júlí 2018 kl. 21:19 eftir 153.92.150.214 (spjall) Útgáfa frá 15. júlí 2018 kl. 21:19 eftir 153.92.150.214 (spjall)
(breyting) ← Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Freska í húsi sem grafið var upp í Pompeii

Freska (freskómynd, freskómálverk, veggmálverk eða kalkvatnsmynd) er vatnslitamynd sem máluð er með sérstakri tækni á blautt kalk, sem dregið er á vegg eins og múrhúðun. Þessi tækni hefur þann kost að ekki er hætta á að málningin flagni af eða springi og liturinn heldur sér vel þótt aldir líði, nema hvað myndirnar kunna að dökkna af sóti frá reykelsi og kertum. Freskan er algeng í kirkjulist fyrri alda og þær freskur sem frægastar hafa orðið eru þær sem Michelangelo málaði á loft Sinxtinsku kapellunnar í páfagarði.

Eitt og annað

[breyta | breyta frumkóða]
  Þessi myndlistagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.