Fara í innihald

Gluggastjóri

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 02:50 eftir Addbot (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. mars 2013 kl. 02:50 eftir Addbot (spjall | framlög) (Bot: Flyt 26 tungumálatengla, sem eru núna sóttir frá Wikidata á d:q216653)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Flett gegnum glugga í skjáborðsumhverfinu GNOME með gluggastjóranum Compiz.

Gluggastjóri er hugbúnaður sem stýrir staðsetningu, útliti og hegðun glugga í gluggakerfi í myndrænu viðmóti. Flestir gluggastjórar eru skrifaðir fyrir tiltekið skjáborðsumhverfi. Þeir bera ábyrgð á því hvernig gluggarnir raðast á skjáinn, sjá um að stækka, minnka og færa glugga til á skjánum og teikna ramma og gluggastiku kringum gluggana. Ýmsir nútímagluggastjórar breyta gluggum fyrst í skyndiminni og breyta síðan bæði þeim og umhverfi þeirra áður en þeir birtast á skjánum. Með þessu móti er hægt að setja skugga undir glugga, fletta gluggum í þrívídd o.s.frv.

  Þessi tölvugrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.