Tennisfélag Reykjavíkur
Útlit
Tennisfélag Reykjavíkur er íþróttafélag sem starfrækt var í Reykjavík frá 1920 til 1926. Það stundaði tennisæfingar á leikvelli Barnaskólans í Reykjavík og í grennd við Höfða. Til að fjármagna gerð Höfðavallarins stóð Tennisfélagið fyrir uppsetningu í Iðnó á revíunni Boltinn með lausa naflann eftir Pál Skúlason og er sýningin talin marka upphaf revíualdarinnar í reykvísku leikhúslífi.
Árið 1926 rann félagið inn í nýstofnaða tennisdeild Íþróttafélags Reykjavíkur.[1]
Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ Guðjón Friðriksson Saga Reykjavíkur. Bærinn vaknar. 1870-1940, 2.bindi. Iðunn 1994.