Viðarkol
Viðarkol eru kol unnin úr viði þannig að viður er settur í kolagröf, kveikt í og byrgð með torfi þannig að loft komst ekki að. Þetta var látið krauma í þrjá til fjóra daga. Viðarkolin voru nauðsynlegt eldsneyti í smiðjum og til rauðablásturs. Viðarkol eru notuð í svart púður.
![](http://upload.wikimedia.org/wikipedia/commons/thumb/c/c8/Charcoal_pile_05-change.jpg/400px-Charcoal_pile_05-change.jpg)
Á Íslandi var áður fyrr algengast að nota birki eða rekavið en stundum fjalldrapa til kolagerðar.