Gin
Gin er brennt vín sem er bragðbætt með einiberjum. Það á rætur sínar að rekja til miðalda, úr heimi grasalækninga en er núna framleitt sem áfengi. Í upphafi var gin selt í apótekum og var notað til lækninga. Gin er byggt á eldra brenndu víni sem nefnist sénever og var fundið upp í Hollandi.
Gin varð mjög vinsælt á Bretlandi þegar Vilhjálmur 3., leiðtogi Hinna sameinuðu Niðurlanda, steig til ríkis árið 1689. Orðið gin á uppruna sinn í franska orðinu genièvre, hollenska orðinu jenever og ítalska orðinu ginepro, sem þýða öll „einiber“.
Oftast er gin drukkið með tónik og skreytt með límónu eða agúrku.