1742
ár
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1742 (MDCCXLII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
breyta- 30. mars - Sveinn Sölvason varð varalögmaður norðan lands og vestan.
- 30. júní - Sunnefumál: Hans Wium sýslumaður dæmdi systkinin Sunnefu Jónsdóttur og Jón Jónsson Sunnefubróður til dauða fyrir sifjaspell, en þau höfðu eignast barn saman.
- Gunnar Pálsson varð skólameistari í Hólaskóla.
- Jón Árnason Skálholtsbiskup lét prenta nýja sálmabók í Kaupmannahöfn.
- Opinbert uppboð á Íslandsversluninni og féll hún í hlut Hörmangarafélagsins.
Fædd
- Ragnheiður Einarsdóttir á Reynistað, móðir Reynistaðarbræðra (d. 1814).
Dáin
- 14. janúar - Þórður Þorkelsson Vídalín, umboðsmaður og læknir (f. 1661).
- 24. júlí - Nikulás Magnússon, sýslumaður í Rangárvallasýslu, drekkti sér í Flosagjá (f. 1700).
Opinberar aftökur
- Þórður og Ögmundur Bjarnasynir, „útileguþjófar“, teknir af lífi á Þingskálaþingi.[1]
Erlendis
breyta- 9. janúar - Robert Walpole, forsætisráðherra Bretlands, sagði af sér.
- 24. janúar - Karl 7. Albert varð keisari hins Heilaga rómverska ríkis.
- 16. febrúar - Spencer Compton, jarl af Wilmington, varð forsætisráðherra Bretlands.
- 13. apríl - Óratórían Messías eftir Händel frumflutt í Dyflinni á Írlandi.
- 20. ágúst - Uppgjöf 17.000 sænskra hermanna í Finnlandi batt í raun enda á Sænsk-rússneska stríðið.
- 13. nóvember - Konunglega danska vísindafélagið var stofnað.
- Sænski stjörnufræðingurinn Anders Celsius skilgreindi Celsius-kvarðann en setti þó frostmark við 100 °C og suðupunktinn við núll gráður.
Fædd
- 14. ágúst - Píus VII (Barnaba Niccolò Maria Luigi Chiaramonti), páfi (d. 1823).
- 6. október - Johan Herman Wessel norskt ljóðskáld (d. 1785)
- 16. desember - Gebhard Leberecht von Blücher, prússneskur herforingi (d. 1819)
Dáin
- 14. janúar - Edmond Halley, breskur stjörnufræðingur (f. 1656).
- 4. júlí - Guido Grandi, ítalskur prestur og stærðfræðingur (f. 1671).
Tilvísanir
breyta- ↑ Skrá á vef rannsóknarverkefnisins Dysjar hinna dauðu, á slóðinni https://dhd.hi.is/gogn/Info.pdf, sótt 15.2.20202.