Old Tjikko
Útlit
Old Tjikko er rauðgreni á Fulufjället í Dalarna í Svíþjóð. Það er samkvæmt rannsóknum heimsins elsti staki trjáklónn, og mun vera að minnsta kosti 9550 ára gamalt. Í kring um tréð voru tekin fjögur sýni af rótinni og voru þau greind með C-14 aldursgreiningu og voru þau 375, 5 660, 9 000 og 9 550 ára gömul. Erfðagreining staðfesti að öll sýnin voru sami klónninn.[1] Finnandinn Leif Kullman gaf trénu nafn eftir hundinum sínum Tjikko.[2]
Um 20 greni eldri en 8000 ára finnast í svæðinu frá Lapplandi til Dalarna,[1] þar á meðal jafnaldri Old Tjikko; Old Rasmus.[3] Fundur Old Tjikko og annarra mjög gamalla grenitrjáa á fjöllum Skandinavíu hefur breytt sýn manna á það sem áður var talið sein útbreiðsla grenis þar.[4]
Myndir
[breyta | breyta frumkóða]Tilvísanir
[breyta | breyta frumkóða]- ↑ 1,0 1,1 World’s oldest living tree discovered in Sweden[óvirkur tengill]
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. febrúar 2014. Sótt 15. febrúar 2017.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 15. ágúst 2010. Sótt 15. febrúar 2017.
- ↑ http://news.nationalgeographic.com/news/2008/04/080414-oldest-tree_2.html
Ytri tenglar
[breyta | breyta frumkóða]Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Old Tjikko.
- Fulufjällets nationalpark -> Old Tjikko