Fara í innihald

Marta Lovísa Noregsprinsessa

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Marta Lovísa Noregsprinsessa

Marta Lovísa Noregsprinsessa (f. 22. september 1971) er norsk prinsessa og eina dóttir koungshjónanna Haraldar 5. Noregskonungs og Sonju Noregsdrottningar.

Marta Lovísa var gift rithöfundinum Ara Behn frá 2002-2017 og eignaðist með honum þrjár dætur. Ari fyrirfór sér í desember árið 2019.

Marta Lovísa er fjórða í erfðaröð norsku krúnunnar, á eftir bróður sínum Hákoni krónprins og börnum hans tveimur. Árið 2002 afsalaði Marta Lovísa sér lífeyri frá konungshöllinni og einnig titlinum „kon­ung­leg há­tign“ og kvaðst þá vilja frelsi til að sinna áhuga­mál­um sín­um. Marta Lovísa sem er menntaður sjúkraþjálfari, rak „engla­skóla“ um tíma (sem kenndi fólki skyggnigáfu og hvernig maður kæmist í samband við engla) og var einnig meðhöfundur tveggja sjálfshjálparbóka sem áttu að aðstoða lesendur við að komast í samband við engla.

Marta Lovísa giftist í annað sinn árið 2024, Bandaríkjamanni að nafni Durek Verrett. Verrett er sjálfsyfirlýstur „seiðmaður“ (shaman) sem hefur víða verið lýst sem svindlara og samsæriskenningamanni. Meðal annars hefur hann fullyrt að hann sé dæmdur glæpamaður og að hann hafi risið upp frá dauðum.[1]

Tilvísanir

  1. „Prinsessan og seiðmaðurinn gift“. mbl.is. 31. ágúst 2024. Sótt 25. september 2024.