Fara í innihald

Tennisfélag Reykjavíkur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 14. október 2010 kl. 11:59 eftir 193.4.101.102 (spjall) Útgáfa frá 14. október 2010 kl. 11:59 eftir 193.4.101.102 (spjall)

Tennisfélag Reykjavíkur er íþróttafélag sem starfrækt var í Reykjavík frá 1920 til 1926. Það stundaði tennisæfingar á leikvelli Barnaskólans í Reykjavík og í grennd við Höfða.

Árið 1926 rann félagið inn í nýstofnaða tennisdeild Íþróttafélags Reykjavíkur.[1]

Tilvísanir

  1. Guðjón Friðriksson Saga Reykjavíkur. Bærinn vaknar. 1870-1940, 2.bindi. Iðunn 1994.