Fara í innihald

Fimleikafélagið Björk

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 13. október 2010 kl. 10:11 eftir 193.4.101.102 (spjall) Útgáfa frá 13. október 2010 kl. 10:11 eftir 193.4.101.102 (spjall) (Ný síða: '''Fimleikafélagið Björk''' er íþróttafélag sem stofnað var í Hafnarfirði árið 1951. Tildrög stofnunarinnar var að hópur stúlkna á táningsaldri ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Fimleikafélagið Björk er íþróttafélag sem stofnað var í Hafnarfirði árið 1951. Tildrög stofnunarinnar var að hópur stúlkna á táningsaldri hóf að æfa fimleika undir leiðsögn Þorgerðar M. Gísladóttur íþróttakennara haustið 1949. Þorgerður var jafnframt fyrsti formaður félagsins. Fyrstu árin var helsta viðfangsefni félagsins að skipuleggja fimleikasýningar á hátíðarhöldunum þann 17. júní.

Nokkur deyfð var yfir starfsemi félagsins á sjöunda áratugnum og lögðust skipulagðar fimleikaæfingar af á tímabili. Eftir 1971 var hins vegar nýju lífi hleypt í starfið og hefur Björk upp frá því verið meðal öflugari fimleikafélaga landsins. Árið 1979 var gerð breyting á lögum félagsins þar sem körlum var leyfð þátttaka.

Aðrar íþróttir

Á árunum í kringum 1960 hélt Fimleikafélagið Björk úti liði í körfuknattleik stúlkna og varð liðið m.a. Íslandsmeistari í 2. flokki árið 1963.[1]

Tilvísanir

  1. Ásgeir Guðmundsson Saga Hafnarfjarðar 1908-1983, 2.bindi. Skuggsjá 1983.