Fara í innihald

Dietrich Bonhoeffer

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 17. janúar 2021 kl. 00:40 eftir InternetArchiveBot (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. janúar 2021 kl. 00:40 eftir InternetArchiveBot (spjall | framlög) (Bjarga 0 heimildum og merki 1 sem dauðar.) #IABot (v2.0.8)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)

Dietrich Bonhoeffer (4. febrúar 1906 í Breslau9. apríl 1945, útrýmingabúðunum í Flossenbürg) var einhver þekktasti þýski guðfræðingur 20. aldar. Hann barðist ötullega gegn nasistum bæði í orði og verki og var einhver fyrsti þýski guðfræðingurinn til að gera sér grein fyrir hvílík hætta stafaði af hinni nýju stjórn Hitlers í Þýskalandi árið 1933.

Bonhoeffer var frá upphafi liðsmaður Játningarkirkjunnar þýsku sem sá að stuðningur við Hitler og nasismann fékk engan veginn samrýmst kristinni trú.