Fara í innihald

Pori

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 3. janúar 2020 kl. 17:29 eftir Berserkur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. janúar 2020 kl. 17:29 eftir Berserkur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Ráðhús Pori.
Pori-sveitarfélagið innan Finnlands.

Pori (sænska: Björneborg) er borg og sveitarfélag í vestur-Finnlandi, við Helsingjabotn, á ósum Kokemäenjoki-fljóts. Íbúar eru um 84.000 (2019). Borgin er höfuðstaður Satakunta-héraðs Finnlands.

Pori var stofnuð árið 1558 af Jóhanni þriðja svíakonungi. Hún var eyðilögð af Rússum snemma á 18. öld og var ráðist á hana af Bretum og Frökkum um miðja 19. öld í Krímstríðinu. Þjóðverjar notuðu flugvöll við Pori í seinni heimsstyrjöld og héldu þar sovéskum stríðsföngum.

Íshokkíliðið Ässät frá Pori hefur þrisvar orðið finnskur meistari. Pori jazz-hátíðin er vel þekkt í Evrópu.