Hofsós
Hofsós er þorp á Höfðaströnd við austanverðan Skagafjörð, báðum megin við ósa Hofsár. Þar er ágætt skipalægi frá náttúrunnar hendi, einkum í norðaustanátt, og betra en annars staðar við Skagafjörð. Talið er að verslun hafi hafist á staðnum á 16. öld, og er Hofsós því einn elsti verslunarstaður landsins. Þangað sóttu Skagfirðingar nær alla sína verslun þar til byggð hófst á Sauðárkróki upp úr 1870.
Föst búseta hófst á Hofsósi á 19. öld og þar búa nú um 200 manns en flestir urðu íbúar þorpsins um 300 um miðja 20. öld. Aðalatvinnuvegurinn var lengst af fiskveiðar og vinnsla sjávarafla og þjónusta við sveitirnar í kring en á síðustu árum hefur ferðamannaþjónusta skipað æ stærri sess. Á Hofsósi er að finna eitt elsta bjálkahús landsins, Pakkhúsið, vörugeymslu frá tíma einokunarverslunarinnar. Það var reist árið 1772. Í Pakkhúsinu er nú Drangeyjarsafn, helgað Drangey og nýtingu hennar fyrr og nú. Þar er einnig Vesturfarasetrið, safn og rannsóknarsetur tengt vesturferðum Íslendinga 1870-1914. Það er í gömlu timburhúsi þar sem Kaupfélag Austur-Skagfirðinga var áður til húsa, og í nýbyggingu sem reist var í sama stíl. Allmörg önnur gömul hús eru í þorpinu, einkum á Plássinu svonefnda, niður við sjóinn, sem hafa flest verið gerð upp og eru sum þeirra notuð sem sumarhús.
Örskammt sunnan við Hofsós er annar gamall verslunarstaður, Grafarós, og spölkorn innar á ströndinni sá þriðji, Kolkuós. Strandlengjan í nágrenni Hofsóss þykir falleg og þar eru merkilegar stuðlabergsmyndanir, einkum í Staðarbjargavík og þó enn frekar í Þórðarhöfða, sem gengur út frá Höfðaströnd spölkorn utan við þorpið.
Ný sundlaug á Hofsósi var vígð um páskana 2010 og er hún gjöf frá athafnakonunum Lilju Pálmadóttur og Steinunni Jónsdóttur, sem eiga jarðir á Höfðaströnd og búa þar eða dvelja löngum.
Upphaflega var Hofsós í Hofshreppi, en þorpið og næsta nágrenni þess var gert að sérstökum hreppi, Hofsóshreppi, 1. janúar 1948. 10. júní 1990 var Hofsóshreppur sameinaður Hofshreppi á ný, ásamt Fellshreppi.
Hinn 6. júní 1998 sameinaðist svo Hofshreppur 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði og mynduðu þau saman Sveitarfélagið Skagafjörð.