Fara í innihald

Alþingiskosningar 1995

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 10. október 2012 kl. 15:07 eftir 213.167.153.91 (spjall) Útgáfa frá 10. október 2012 kl. 15:07 eftir 213.167.153.91 (spjall) (→‎Tenglar)

Alþingiskosningar 1995 voru kosningar til Alþingis Íslendinga sem fóru fram 8. apríl 1995. Á kjörskrá voru 191.973 manns. Kosningaþátttaka var 87,4%. Í þessum kosningum bauð fram nýtt stjórnmálaafl, Þjóðvaki, klofningsframboð úr Alþýðuflokknum undir stjórn Jóhönnu Sigurðardóttur og Ágústs Einarssonar, fékk fjóra þingmenn en Alþýðuflokkurinn missti þrjá. Þrír þessara Þjóðvakaþingmanna gengu síðar á kjörtímabilinu í „þingflokk jafnaðarmanna“ ásamt þingmönnum Alþýðuflokksins. Kvennalistinn fékk ekki nema þrjár þingkonur - missti tvær frá fyrra kjörtímabili.

Stjórnarmyndun

Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðuflokkurinn fengu samanlagt nægilegan fjölda þingsæta til þess að Viðeyjarstjórnin hefði haldið velli, en aðeins með eins manns mun. Eftir kosningarnar fór Davíð Oddsson með stjórnarmyndunarumboð fyrir Sjálfstæðisflokkinn og myndaði ríkisstjórn með Framsóknarflokknum undir forystu Halldórs Ásgrímssonar. Nýja ríkisstjórnin hafði þannig 40 þingmanna meirihluta.

Sameining á vinstri vængnum

Eftir kosningarnar fóru viðræður um sameiningu flokkanna fjögurra á vinstri vængnum í eina Samfylkingu á fullt skrið og lauk með því að þessir flokkar gerðu með sér kosningabandalag í kosningunum 1999. Í sveitarstjórnarkosningunum árið 1994 höfðu þrír þessara flokka, auk Framsóknarflokksins, gert með sér kosningabandalag í Reykjavík og haft sigur undir merkjum Reykjavíkurlistans.

Flokkur Formenn Atkvæði % +/- Þingmenn +/-
Alþýðu­flokkurinn Jón Baldvin Hannibalsson 18.846 11,4 -4,1 7 -3
Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn Halldór Ásgrímsson 38.485 23,3 +4,4 15 +2
Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn Davíð Oddsson 61.183 37,1 -1,5 25 -1
Alþýðu­bandalagið (og óháðir) Ólafur Ragnar Grímsson 23.597 14,3 -0,1 9
Kvennalistinn Enginn formaður 8.031 4,9 -3,4 3 -2
Þjóðvaki Jóhanna Sigurðardóttir 11.806 7,2 4 +4
Náttúrulagaflokkurinn 957 0,6 0
Kristileg stjórnmálasamtök 316 0,2 0
Aðrir og utan flokka 1.822 1,1 0
Alls 152.722 100 63

Forseti Alþingis var kjörinn Ólafur G. Einarsson, Sjálfstæðisflokki

Úrslit í einstökum kjördæmum

Reykjavíkurkjördæmi

Listar Av Av% Ft (Ft) Δ
B Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn 9.743 14,9 2 1 +1
D Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn 27.736 42,3 8 9 -1
A Alþýðu­flokkurinn 7.498 11,4 2 3 -1
G Alþýðu­bandalagið 9.440 14,4 3 2 +1
J Þjóðvaki 5.777 8,8 2 +2
V Kvennalistinn 4.594 7 2 3 -1
K Kristileg stjórnmálahreyfing 202 0,3 0
N Náttúrulagaflokkur Íslands 603 0,9 0
Alls 65.593 100 19 18 +1


Reykjaneskjördæmi

Listar Av Av% Ft (Ft) Δ
B Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn 8.810 21 2 1 +1
D Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn 16.431 39,2 5 5 -
A Alþýðu­flokkurinn 6.603 15,8 2 3 -1
G Alþýðu­bandalagið 5.330 12,7 1 1 -
J Þjóðvaki 2.545 6,1 1 +1
V Kvennalistinn 1.761 4,5 1 1 -
K Kristileg stjórnmálahreyfing 114 0,3 0
N Náttúrulagaflokkur Íslands 276 0,7 0
Alls 41.870 100 12 11 +1


Suðurlandskjördæmi

Listar Av Av% Ft (Ft) Δ
B Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn 3.766 29 2 2 -
D Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn 4.310 33,2 2 3 -1
A Alþýðu­flokkurinn 877 6,8 1 0 +1
G Alþýðu­bandalagið 2.043 15,8 1 1 -
J Þjóðvaki 524 4 0 -
V Kvennalistinn 294 2,3 0 0 -
S Suðurlandslistinn 1.105 8,5 0
N Náttúrulagaflokkur Íslands 50 0,4 0
Alls 12.969 100 6 6 -


Austurlandskjördæmi

Listar Av Av% Ft (Ft) Δ
B Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn 3.668 46,9 2 2 -
D Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn 1.760 22,5 2 1 +1
A Alþýðu­flokkurinn 577 7,4 0 1 -1
G Alþýðu­bandalagið 1.257 16,1 1 1 -
J Þjóðvaki 365 4,7 0 -
V Kvennalistinn 191 2,4 0 0 -
Alls 7.818 100 5 5 -


Norðurlandskjördæmi eystra

Listar Av Av% Ft (Ft) Δ
B Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn 6.015 36,8 2 3 -1
D Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn 4.606 28,2 2 2 -
A Alþýðu­flokkurinn 1.211 7,4 0 1 -1
G Alþýðu­bandalagið 2.741 16,8 1 1 -
J Þjóðvaki 1.414 8,7 1 +1
V Kvennalistinn 351 2,1 0 0 -
Alls 16.338 100 6 7 -1


Norðurlandskjördæmi vestra

Listar Av Av% Ft (Ft) Δ
B Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn 2.454 38,7 2 2 -
D Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn 1.951 30,8 2 2 -
A Alþýðu­flokkurinn 318 5 0 0 -
G Alþýðu­bandalagið 987 15,6 1 1 -
J Þjóðvaki 429 6,8 0 -
V Kvennalistinn 204 3,2 0 0 -
Alls 6.343 100 5 5 -


Vestfjarðakjördæmi

Listar Av Av% Ft (Ft) Δ
B Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn 1.086 19,8 1 1 -
D Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn 1.787 32,6 2 2 -
A Alþýðu­flokkurinn 752 13,7 1 1 -
G Alþýðu­bandalagið 651 11,9 1 1 -
J Þjóðvaki 184 3,4 0 -
V Kvennalistinn 312 5,7 0 1 -1
M Vestfjarðalistinn 717 13,1 0
Alls 5.489 100 5 6 -1


Vesturlandskjördæmi

Listar Av Av% Ft (Ft) Δ
B Merki Framsóknar Framsóknar­flokkurinn 2.943 34,1 2 1 +1
D Merki Sjálfstæðisflokksins Sjálfstæðis­flokkurinn 2.602 30,2 2 2 -
A Alþýðu­flokkurinn 1.010 11,7 1 1 -
G Alþýðu­bandalagið 1.148 13,3 0 1 -1
J Þjóðvaki 568 6,6 0 -
V Kvennalistinn 324 3,8 0 0 -
N Náttúrulagaflokkur Íslands 28 0,3 0
Alls 8.623 100 5 5 -



Fyrir:
Alþingiskosningar 1991
Alþingiskosningar Eftir:
Alþingiskosningar 1999

Önnur minni framboð

Náttúrulagaflokkurinn

Heimildir

Tenglar