Fara í innihald

Grímsstaðaholt

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Útgáfa frá 28. desember 2011 kl. 18:12 eftir 85.220.20.217 (spjall) Útgáfa frá 28. desember 2011 kl. 18:12 eftir 85.220.20.217 (spjall)

Grímsstaðaholt er hverfi í Reykjavík. Það er fyrir sunnan Melana og Hagana og vestan við Skerjafjörð og Reykjavíkuflugvöll. Fálkagata, Þrastargata, Smyrilsvegur og suðausturendi Hjarðarhaga teljast vera í Grímsstaðaholti, en á sjálfu holtinu er VR-III, hús verkfræði- og raunvísindanema í Háskóla Íslands.

Holtið nefndist áður Móholt og dró nafn sitt af því að þar þurrkuðu Reykvíkingar sinn. Árið 1842 var fyrsta býlið reist á þessum slóðum. Þá kom Grímur Egilsson sér upp bæ og nefndi Grímsstaði. Stóð hann þar sem vesturendi Fálkagötu er nú. Varð það til þess að farið var að kenna holtið við býlið.

  Þessi landafræðigrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.