Rafmótstaða

(Endurbeint frá Viðnám)

Rafmótstaða (enska: electrical resistance), oftast kölluð (raf)viðnám, er tregða rafleiðara við að flytja rafstraum, mæld í SI grunneiningunni ohm, og veldur spennufalli í rafrás. Er yfirleitt fasti í rafrásum, en er þó háð hita leiðarans. Orðið viðnám (enska: resistor) er líka notað um íhluti, sem valda rafmótstöðu í rafrás.

Rafleiðni er umhverfa viðnáms og lýsir eiginleika hlutar við að flytja rafstraum.

Skilgreining

breyta

Ef rafleiðari ber einsleitan jafnstraum má reikna rafmótstöðu með eftirfarandi jöfnu:

 

þar sem

l er lengd leiðara,
A er þverskurðarflatarmál hans og
ρ eðlisviðnám.

Rafmótstaða í riðstraumsrás kallast samviðnám og er summa raun- og launviðnáms rásarinnar. Í jafnstraumsrás er launviðnám núll, þ.a. rafviðnám er eingöngu raunviðnám.

Ohmslögmál gefur samband rafspennu, V, rafstraums I og rafmótstöðu R í rafrás með jöfnunni V = IR. Ofurleiðari hefur enga rafmótstöðu.