Roman Polanski

fransk-pólskur kvikmyndagerðarmaður

Rajmund Roman Thierry Polański (f. 18. ágúst 1933) er fransk-pólskur kvikmyndagerðarmaður. Hann fæddist í Frakklandi en flutti með foreldrum sínum, sem voru pólskir gyðingar, til Kraká árið 1937. Báðir foreldrar hans voru fluttir í fangabúðir nasista og móðir hans var myrt fljótlega eftir komu sína til Auschwitz. Hann lifði stríðsárin af á flótta. Eftir stríð gekk hann í Kvikmyndaskólann í Łódź. Hann vakti athygli fyrir sína fyrstu kvikmynd, Hnífur í vatni (1962), og flutti eftir það til Frakklands. Síðar bjó hann í Englandi og Bandaríkjunum þar sem hann giftist leikkonunni Sharon Tate. Hún var myrt í Hollywood af Manson-genginu meðan hann var við störf í London. Hann sneri aftur til Bandaríkjanna árið 1971. Árið 1977 var hann ákærður fyrir að nauðga barnungri fyrirsætu. Polanski, sem var þá orðinn franskur ríkisborgari, flúði til Frakklands og hefur ekki snúið aftur til Bandaríkjanna síðan. Bandarísk yfirvöld hafa nokkrum sinnum krafist framsals hans en án árangurs.

Roman Polanski
Roman Polanski árið 2013.
Fæddur
Rajmund Roman Thierry Liebling

18. ágúst 1933 (1933-08-18) (91 árs)
París í Frakklandi
Ríkisfang
  • Pólland
  • Frakkland
Menntun
  • Kvikmyndaskólinn í Łódź
  • Listaakademían í Kraká
Störf
  • Kvikmyndaleikstjóri
  • Handritshöfundur
  • Framleiðandi
  • Leikari
Ár virkur1953-í dag
Maki
Börn2, m.a. Morgane

Polanski hefur gert mikinn fjölda kvikmynda og er margverðlaunaður leikstjóri. Meðal þekktustu mynda hans eru Viðbjóður (Repulsion) frá 1965, Blindgata (Cul-de-sac) frá 1966, Barn Rosemary (Rosemary's Baby) frá 1968, Kínahverfið (Chinatown) frá 1974, Leigjandinn (Le Locataire) frá 1976, Tess frá 1979, Örvænting (Frantic) frá 1988, Níunda hliðið (The Ninth Gate) frá 1999 og Píanóleikarinn (The Pianist) frá 2002.

Kvikmyndaskrá

breyta

Kvikmyndir í fullri lengd

breyta
Ár Upprunalegur titill Íslenskur titill Leikstjóri Handritshöfundur Framleiðandi Athugasemdir
1962 Nóż w wodzie Hnífur í vatni Nei
1964 Aimez-vous les femmes? Nei
1965 Repulsion Viðbjóður Nei
1966 Cul-de-sac Blindgata Nei
1967 Dance of the Vampires Óttalausu blóðsugubanarnir Nei Einnig titluð sem The Fearless Vampire Killers
1968 Rosemary's Baby Barn Rosemary Nei
1969 Downhill Racer Ótitlaður Nei Yfirferð á handriti
1970 A Day at the Beach Einn dagur á ströndinni Ótitlaður Byggt á Een dagje naar het strand eftir Simon Heere Heeresma
1971 Le Bateau sur l'herbe Nei
1971 Macbeth Nei
1972 Che? Hvað? Nei Einnig titluð sem Diary of Forbidden Dreams
1974 Chinatown Kínahverfið Ótitlaður Nei
1976 Le locataire Leigjandinn Nei
1979 Hurricane Ótitlaður Nei Handritshöfundur ásamt Lorenzo Semple Jr.
1979 Tess Nei
1986 Pirates Sjóræningjar Nei
1988 Frantic Örvænting eða Á reiðiskjálfi Nei
1992 Bitter Moon Bitur máni
1994 Death and the Maiden Dauðinn og stúlkan Nei Nei
1999 The Ninth Gate Níunda hliðið
2002 The Pianist Píanóleikarinn Nei
2005 Oliver Twist Nei
2010 The Ghost Writer Skrifað af öðrum
2011 Carnage Blóðbað Nei
2013 La Vénus à la fourrure Venus í feldi Nei
2017 D'après une histoire vraie Nei
2019 J'accuse Ég ákæri Nei
2023 The Palace Nei
   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.